Handpad

Upplýsingar

Léttur og nettur stuðningspúði

bara HANDPAD er til í þremur sætisbreiddum: 40, 45 og 50cm
  • Bara Handpad - Grafít Grár
    Grafít Grátt

Höfundarréttur

bara HANDPAD © er framleitt á Íslandi og hefur skráða hönnunarvernd.

Um Handpad

bara HANDPAD er léttur og nettur stuðningspúði sem passar inn í mjórri sæti eins og hjólastóla. Með því að hvíla framhandleggina á púðanum er hægt að bæta setstöðu og minnka vöðvaspennu og álag á herðar, handleggi og bakvöðva. Púðinn nýtist bæði til hvíldar og við margvíslega iðju.

Margir upplifa öryggi, vellíðan og betra setjafnvægi þegar handleggirnir hvíla á HANDPAD-púðanum. Hægt er að hækka undir framhandleggina og rétta betur úr bakinu með því að snúa púðanum upp á endann og leggja handleggina ofan á hann.

HANDPAD er til í þremur sætisbreiddum: 40, 45 og 50cm og er bæði léttur og meðfærilegur. Á framanverðum púðanum er handfang sem kemur sér vel til að hengja púðann upp, t.d. á hjólastól.

Hægt er að sækja um bara-stuðningspúða fyrir hjólastólanotendur til Hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands.

Ítarlegri upplýsingar

Efni

bara HANDPAD er gert úr vönduðu áklæðisefni með teflonvörn (80% Polyester og 20% Bómull). Efnið er mjúkt viðkomu og teflon-húðin gerir það einfalt að þrífa og fjarlæga bletti.
Það er rennilás á púða-verinu svo hægt er að setja það eitt og sér í þvottavél.
Innra-byrði púðans er úr 100% bómull.

Fylling

Sem fyllingu í púðanum notum við örlitlar tregbrennanlegar polystyrene perlur sem veita þéttan stuðning og rýrna lítið.
Hægt er að taka úr eða bæta í fyllinguna eftir þörfum þar sem rennilás er á innra-verinu.

Þvottaleiðbeiningar

bara HANDPAD er gert úr vönduðu áklæðisefni með teflonvörn. Það má þvo ytrabyrði púðans á 30°C á mildu þvottaprogrammi og þvottaefnið þarf að vera án bleikiefna. Einnig er hægt að setja púðaverið í hreinsun.
Ekki má setja púðaverið í þurrkara.

7. Machine wash, permanent press / wrinkle resistant, 30 degrees CDo not bleachDo not ironDry cleanDo not tumble dry

Þyngd & Stærð

bara HANDPAD fæst í þremur sætisbreiddum: 40, 45 og 50 cm er þyngdin eftir því um 500 – 650 g.

Þrjár mögulegar stærðir

Smelltu á lit til að sjá stærri mynd af púðanum

40cm – 45cm – 50cm

Kynntu þér það sem viðskiptavinir og sérfræðingar hafa að segja um Handpad

Smelltu á textan fyrir neðan til að fletta í gegnum reynslusögurnar.
  • “Ég sit í hjólastól og hef nú notað bara HANDPAD á hverjum degi í 6 og hálft ár. Ég hef góðan stuðning af púðanum þegar ég les við borð, vinn við tölvu og sinni eldhúsverkum.
    Ég get ekki án Bara-púðans verið, auk stuðningsins auðveldar hann mér að slaka á í öxlum og handleggjum og með því dregur úr þrálátum verkjum.”

    Elín Þ. Snædal· 2012
  • “Reynsla mín af notkun Bara-púðanna eftir 10 ára starf á hjúkrunarheimili er frábær. Hönnun púðanna eykur notagildi þeirra á margvíslegan hátt, bæði fyrir fatlaða og ófatlaða einstaklinga, svo sem í hjólastóla, við lestur, hannyrðir, fyrir rúmliggjandi einstaklinga og ekki minnst fyrir alzheimer sjúklinga sem finnst róandi að strjúka og handfjatla Bara-púðann. Bara-púðarnir eru gjöf sem gleður, þeir gagnast frábærlega fyrir einstaklinga sem eru frískir og búa heima. Eftir vinnudag finnst mér frábært að grípa Peru-púðann, hvíla axlir og handleggi t.d. við lestur, tölvuvinnu, fyrir framan sjónvarpið og ýmsar athafnir daglegs lífs.”

    María Kristjánsdóttir· Sjúkraþjálfi, 2012
  • “HANDPAD-púðar frá Bara hafa verið í notkun við Endurhæfingardeild Landspítalans á Grensás í mörg ár fyrir lamaða skjólstæðinga sem þurfa stuðning undir hendurnar. Púðinn nýtist vel til að halda höndunum í afslappaðri og hlutlausri stöðu sem veitir skjólstæðingum okkar öryggis- og vellíðunartilfinningu.”

    Hrönn Guðmundsdóttir· Sjúkraþjálfi, 2012
  • “Á undanförnum árum hef ég nýtt bæði Peru- og HANDPAD-púða frá Bara fyrir skjólstæðinga sem eru bundnir í hjólastól. Púðarnir veita mýkt en á sama tíma stuðning, tveir kostir sem oft er erfitt að finna í einni og sömu vörunni.
    Frábærar vörur frá Bara!”

    Guðfinna Björnsdóttir· Sjúkraþjálfi á Hrafnistu, 2012